133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

Aðgerðir til að jafna flutningskostnað.

[15:20]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Þetta mál hefur verið, eins og fyrirspyrjandi sagði, í athugun og er í athugun. Vissulega hafa orðið breytingar á innbyrðis hlutföllum í verðlagi í verslunum, sérstaklega hjá verslanakeðjunum úti á landi miðað við höfuðborgarsvæðið og þar hefur orðið nokkur framför.

En við höfum ekki komið þessu máli fram eins og hann benti á. Það er rétt, en það er enn þá í vinnslu.