133. löggjafarþing — 8. fundur,  9. okt. 2006.

Aðgerðir til að jafna flutningskostnað.

[15:23]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Það er alveg rétt sem fyrirspyrjandi segir. Það er til mjög mikið efni um þetta. Það hefur verið skoðað og gaumgæft og er gert áfram. Það er áfram unnið að þessu máli.

Ég ítreka það sem ég sagði um þá tilkynningu sem var gefin í dag sem skiptir þennan málaflokk líka miklu.