133. löggjafarþing — 10. fundur,  11. okt. 2006.

neyslustaðall.

102. mál
[13:41]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hlý orð í minn garð. Forstöðumaður Neytendastofu hefur verið formaður í hópnum sem hefur unnið þann neyslustaðal sem við erum að tala um. Ég treysti því að neyslustaðallinn sé raunhæfur og raunverulegur og ég geri ráð fyrir að Neytendastofa muni nota hann. Þar með verður hann væntanlega þegar tekinn til einhverra nota og vonandi breiðist sú notkun út.

Ég mun reyna að veita skýr og greið svör en það verður að fara eftir málsatvikum hverju sinni.