133. löggjafarþing — 14. fundur,  18. okt. 2006.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Þuríður Backman):

Klukkan 15.30 í dag verða atkvæðagreiðslur og jafnframt fer fram umræða utan dagskrár um þjónustu við heilabilaða. Málshefjandi er hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir. Hæstv. heilbrigðisráðherra Siv Friðleifsdóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.