133. löggjafarþing — 16. fundur,  19. okt. 2006.

Sinfóníuhljómsveit Íslands.

57. mál
[12:06]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eins og menn þekkja er þetta frumvarp liður í endurskipulagningu á rekstri Ríkisútvarpsins í tengslum við frumvarp til laga sem við höfum nú þegar rætt, um Ríkisútvarpið, og varðar meðal annars þátttöku Ríkisútvarpsins í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Frumvarpið gerir ráð fyrir að sama verði gert um þátttöku Seltjarnarnesbæjar í rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar, þ.e. að Seltjarnarnesbær muni ekki lengur greiða þetta eina prósent sem hann hefur fram til þessa greitt til hljómsveitarinnar og ríkið þá yfirtaka þann hluta.

Með frumvarpi þessu ráðgert að fella úr gildi þá lagaskyldu sem felst í b-lið 1. mgr. 3. gr. fyrrnefndra laga um Sinfóníuhljómsveit Íslands, að Ríkisútvarpið greiði sem nemur 25% af rekstri hljómsveitarinnar. Að teknu tilliti til þessarar breytingar er eðlilegt að Ríkisútvarpið eigi ekki lengur fulltrúa í stjórn hljómsveitarinnar og því er lagt til að ráðuneytið tilnefni mann í stjórn í stað Ríkisútvarpsins, eins og segir í 2. gr. frumvarpsins..

Varðandi niðurfellingu á greiðsluþátttöku Seltjarnarnesbæjar í rekstri hljómsveitarinnar, sem 1. gr. frumvarpsins gerir ráð fyrir, hefur bæjarstjórn Seltjarnarness ítrekað mótmælt því að greiðsluþátttaka sveitarfélagsins í gildandi lögum standi óhögguð og óskað eftir því að lagabreyting verði gerð á þann veg að fella hana niður. Hefur bæjarstjórn bent á að þegar hún samþykkti aðild að rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar á árinu 1982 hafi verið gert ráð fyrir því að fleiri sveitarfélög en Reykjavík og Seltjarnarnes tækju þátt í rekstrinum, en svo hefði ekki orðið. Með frumvarpinu er orðið við þessum óskum Seltjarnarnesbæjar og því lagt til að d-liður 1. mgr. 3. gr. gildandi laga falli brott. Áfram er hins vegar gert ráð fyrir greiðsluþátttöku Reykjavíkurborgar í rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, enda náin og ágæt samvinna milli ríkisins og Reykjavíkurborgar á ýmsum sviðum menningarstarfsemi, svo sem vegna Listahátíðar í Reykjavík og nú síðast samstarfsverkefnis ríkis og Reykjavíkurborgar um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar í Reykjavík þar sem meðal annars hljómsveitin mun hafa aðstöðu.

Í samræmi við niðurfellingu á greiðsluþátttöku Ríkisútvarpsins og Seltjarnarnesbæjar gerir a-liður 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins því ráð fyrir að framlag ríkissjóðs hækki sem nemur þessum framlögum úr 56% í 82%.

Þá er í 1. gr. frumvarpsins lögð til orðalagsbreyting á 4. mgr. 3. gr. gildandi laga sem fjallar um samning milli Sinfóníuhljómsveitarinnar og Ríkisútvarpsins um réttindi Ríkisútvarpsins til flutnings á tónlistarefni hljómsveitarinnar. Verði frumvarp þetta að lögum verður ekki lengur um að ræða flutning á tónlistarefni hljómsveitarinnar á móti framlagi útvarpsins, eins og fram kemur í ákvæðinu, og er því lagt til að Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ríkisútvarpið geri með sér samning um flutning á tónlistarefni hljómsveitarinnar til að tryggja áframhaldandi samstarf þeirra. Vilji er til þess, það er rétt að undirstrika það, af hálfu Sinfóníuhljómsveitarinnar og Ríkisútvarpsins að viðhalda samstarfi um flutning tónlistarefnis hljómsveitarinnar, og frekar að auka hann en draga úr.

Að síðustu er í 3. gr. frumvarpsins lögð til orðalagsbreyting 7. gr. gildandi laga sem fjallar um sjö manna verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar. Samkvæmt gildandi lögum tilnefnir Ríkisútvarpið einn í nefndina, en í ljósi frumvarps þessa þykir rétt að sá fulltrúi falli brott. Þar sem breyta þarf umræddu ákvæði hefur komið fram vilji af hálfu Sinfóníuhljómsveitarinnar um að breyta enn frekar orðalagi þess og einfalda það á þann veg sem hér er lagt til. Í stað þess að kveða á um skyldu til að velja verkefnavalsnefnd er lagt til að stjórn hljómsveitarinnar verði heimilt að skipa verkefnavalsnefnd um verkefni hljómsveitarinnar. Stjórnin ákveði síðan nánar um skipulag og hlutverk nefndarinnar.

Virðulegi forseti. Ég hef nú rakið efni þessa frumvarps. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. menntamálanefndar og 2. umr.