afnám refsiákvæða vegna ærumeiðinga.
Frú forseti. Ég ætla ekki að fara í mikla og langa efnislega umræðu um þessa ágætu þingsályktunartillögu sem hv. þm. Eiríkur Jónsson mælti fyrir. Ég vil aðeins vekja athygli á að hér er hreyft afar brýnu og mikilvægu máli og nálgunin virðist mér vera með þeim hætti að það sé eðlilegt að sú nefnd sem fær þetta mál til meðferðar hugleiði það mjög alvarlega hvort þetta sé ekki einmitt hin rétta nálgun.
Við höfum áður heyrt koma fram óskir um að refsingar verði frekar auknar á þessu sviði, sem ég tel í raun alveg fráleitt. Mér fannst hv. flutningsmaður gera afar glögglega grein fyrir hinu alþjóðlega samhengi hlutanna líka. Hvernig við erum orðuð við ríki sem við viljum alls ekki eiga samleið með.
Ég held, frú forseti, að rétt sé að vekja sérstaka athygli á því að hér er hreyft afar brýnu máli og eðlilegt að það verði skoðað með réttu hugarfari að sú leið verði farin sem hv. þm. Eiríkur Jónsson bendir á.
Ég vil einnig, frú forseti, vekja sérstaka athygli á að hér er mál sem hv. þingmaður er að flytja í fyrsta skipti. Hann er að flytja sitt fyrsta mál. Þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur heldur afar mikilvægur og ég tel því rétt, frú forseti, að sú nefnd sem mun fjalla um þetta veiti þessu alveg sérstaka athygli.