133. löggjafarþing — 22. fundur,  7. nóv. 2006.

álbræðsla á Grundartanga.

93. mál
[15:09]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Um er að ræða jöfnun milli þessara fyrirtækja og samræmingu á þessum ákvæðum. Um er að ræða samræmingu við almennt skattumhverfi að öðru leyti en því að við erum bundin af skuldbindandi samningum sem snerta þennan vaxtaþátt.