133. löggjafarþing — 23. fundur,  8. nóv. 2006.

teikning af legu raflínu frá Skagafirði til Húsavíkur.

235. mál
[18:07]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég held satt að segja, a.m.k. samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef, að ályktanir hv. þingmanns séu alveg út í hött. Það er ekki hægt að draga þær ályktanir af tilurð þessara skematísku teikninga, þær voru einfaldlega gerðar við allt aðrar aðstæður og út frá allt öðrum sjónarmiðum en hún lýsti og nú eru uppi.