Náttúruminjasafn Íslands.
Hæstv. forseti. Hæstv. menntamálaráðherra fór að nokkru leyti yfir það í ræðu sinni hvað hefur breyst í málinu frá því að það var hér til umfjöllunar á liðnu vori en 1. umræða um það fór fram í apríl þannig að ekki er nú lengra síðan við vorum í þessum sömu sporum.
Það kemur í ljós að búið er að gera bragarbætur á til dæmis varðandi menntun forstöðumanns. Ég tel það vera afar vel. Það kemur hins vegar ekki fram í máli hæstv. ráðherra nú hvort farið hafi verið fram á einhvers konar samráð eða samstarf við umhverfisráðuneytið en eitt af því sem við ræddum við 1. umr. í vor var að hér væri verið að efla og efna til breytinga í raun og veru eða nýrra tengsla þessarar stofnunar sem heyrir undir umhverfisráðuneytið, þ.e. Náttúrufræðistofnunar Íslands, og hins nýja höfuðsafns. Þarna er því verið að skilja ákveðinn málaflokk eða hluta þessa málaflokks undan umhverfisráðuneyti kannski þannig að ég hefði haldið og talaði fyrir því hér á síðasta vori að vera þyrfti ákveðin samræða og samtal á milli umhverfisráðuneytis og menntamálaráðuneytis í þessum efnum. Ég mundi vilja fá að heyra það frá hæstv. ráðherra áður en við höldum lengra inn í umræðuna hvort slíkt samtal hafi farið fram.