133. löggjafarþing — 25. fundur,  13. nóv. 2006.

upplýsingar og samráð í fyrirtækjum.

231. mál
[19:26]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Magnús Stefánsson) (F):

Virðulegi forseti. Markmiðið er að þessi ákvæði haldi. Það er alveg ljóst. Auðvitað væntum við þess að aukið samráð muni tryggja það. Ég get út af fyrir sig ekki svarað því öðruvísi. Markmiðið liggur fyrir í frumvarpinu og við væntum þess að það nái fram að ganga.