133. löggjafarþing — 26. fundur,  14. nóv. 2006.

fjármagn til fíkniefnavarna.

[13:53]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Hv. þm. Björgvin Sigurðsson óskar eftir að bera af sér sakir. Hv. þingmenn verða að sætta sig við ýmis ummæli hér í þingsalnum. Forseti varð ekki vör við að þetta væri það mikið svigurmæli að ástæða væri til þess að hv. þingmaður bæri af sér sakir. En þingmaðurinn getur auðvitað komið hér upp og rætt um fundarstjórn forseta ef hann óskar eftir því.