133. löggjafarþing — 30. fundur, 20. nóv. 2006.
tilkynning um úrsögn úr þingflokki.
Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 19. nóvember:
„Það tilkynnist yður hér með, herra forseti, að ég undirritaður hef sagt mig úr þingflokki Samfylkingarinnar og úr Samfylkingunni. Ég mun það sem eftir lifir þessa kjörtímabils starfa á Alþingi sem óháður þingmaður utan þingflokka.
Virðingarfyllst,
Valdimar Leó Friðriksson,
9. þingmaður Suðvesturkjördæmis.“