133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

niðurgreiðsla á raforku til húshitunar.

[15:10]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég endurtek það sem ég sagði: Þetta er í athugun. Reyndar fá hlutfallslega fleiri svipað verð eða lægra en þeir sem fá hækkun og það gerir málið að því leyti auðveldara, að sjálfsögðu. Þetta verður áfram í athugun og við munum reyna að koma með tillögur svo fljótt sem við höfum tekið saman nauðsynlegar upplýsingar.