133. löggjafarþing — 30. fundur,  20. nóv. 2006.

Landsvirkjun.

364. mál
[16:01]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef ekki tilefni til að fjalla um þessa tillögu sérstaklega, hvorki amast við henni né taka undir hana. En ég geri ráð fyrir að það verði býsna flóknir reikningar og ýmsir liðir bæði í debet og kredit í því.