133. löggjafarþing — 35. fundur,  24. nóv. 2006.

tilkynning um dagskrá.

[10:32]
Hlusta

Forseti (Rannveig Guðmundsdóttir):

Um klukkan 4 í dag fer fram umræða utan dagskrár um málefni Umhverfisstofnunar í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar. Málshefjandi er hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Hæstv. umhverfisráðherra Jónína Bjartmarz verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.