133. löggjafarþing — 50. fundur,  9. des. 2006.

þingfrestun.

[19:04]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

„Handhafar valds forseta Íslands gjöra kunnugt:

Að vér, að tilskildu samþykki Alþingis, veitum forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 133. löggjafarþings, frá 9. desember 2006 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 15. janúar 2007.

Gjört í Reykjavík, 8. desember 2006.

Geir H. Haarde. Sólveig Pétursdóttir.

Gunnlaugur Claessen.

_____________

Geir H. Haarde.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því hér með yfir að fundum Alþingis, 133. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.