133. löggjafarþing — 54. fundur,  18. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[22:47]
Hlusta

Forseti (Jón Kristjánsson):

Forseti endurtekur að það er nauðsynlegt miðað við hvernig þessari umræðu hefur undið fram að gefa hv. þingmönnum tækifæri til að tjá sig og óhjákvæmilegt að taka í það nokkurn tíma. Við verðum að reikna með að halda hér áfram miðað við þann gang sem hefur verið í þessu í dag, halda áfram fram yfir kl. 12. Ég sé til um það leyti hvernig umræðunni vindur fram.