133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

vátryggingarsamningar.

387. mál
[20:00]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Sannleikans vegna verð ég auðvitað að taka það fram líka sem ég sagði að þetta er millileið. Það er verið að reyna að þræða þarna millileið um rekstrarforsendur hér á landi og samkeppnishæfni. En að öðru leyti tek ég undir það sem þingmaðurinn sagði og ítreka það að minn skilningur er sá að hér sé um þrengingu að ræða en ekki útvíkkun á heimildum vátryggingafélaganna.