133. löggjafarþing — 62. fundur,  30. jan. 2007.

efnahagsmál.

[13:55]
Hlusta

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Frú forseti. Það eru 10 atriði í efnahagsmálum sem eru á ábyrgð ríkisstjórnar Geirs Haardes.

Í fyrsta lagi hefur misskipting tekna og eigna orðið ein sú mesta sem þekkist meðal nágrannaþjóðanna.

Í öðru lagi neyðast íslenskrar fjölskyldur nú til að borga himinháan verðbólguskatt ríkisstjórnarinnar.

Í þriðja lagi hefur skattbyrði allra Íslendinga aukist í tíð þessarar ríkisstjórnar nema þeirra 10% tekjuhæstu.

Í fjórða lagi eru tæplega 5.000 íslensk börn skilin eftir í fátækt og þriðji hver eldri borgari er látinn lifa við fátækt.

Í fimmta lagi heldur ríkisstjórnin dauðahaldi í ónýtan gjaldmiðil og neitar að horfast í augu við að aðild að ESB þjónar hagsmunum Íslendinga best til lengri tíma.

Í sjötta lagi borgar íslenskur almenningur eitt hæsta matvælaverð í heimi, eitt hæsta lyfjaverð í heimi, eitt hæsta bensínverð í heimi og eina hæstu vexti í heimi. Aldrei hefur verið eins kostnaðarsamt að eignast húsnæði og núna.

Í sjöunda lagi hefur ríkiskassinn 160 milljörðum kr. meira úr að spila á ári en hann hafði árið 1995 þegar þessi ríkisstjórn tók við. Ríkissjóður er því 73% dýrari í rekstri. Almenningur veit að ekki hefur þjónusta ríkisins batnað um 73% á sama tíma.

Í áttunda lagi hafa skuldir Íslendinga aldrei verið eins háar.

Í níunda lagi hefur hagvöxtur á heilum landsvæðum úti á landi verið neikvæður.

Og í tíunda lagi hefur verið fullkomin óstjórn á ríkisfjármálunum. Fjárlögin standast aldrei og hagstjórnarmistökin eru síendurtekin.

Frú forseti. Samfylkingin er með stefnu til að bæta úr öllum þessum atriðum. Samfylkingin mun gera Ísland bæði betra og ódýrara. En þessari ríkisstjórn, ríkisstjórn okurs og ójafnaðar, þarf að koma frá.

Það er kominn tími til að hófsemd komi í stað græðgi, samhjálp í stað sérhyggju. (Forseti hringir.) Við eigum góð gildi um frelsi, jafnrétti og bræðralag, setjum þau aftur í öndvegi. (Gripið fram í.)