133. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2007.

tæknifrjóvgun.

530. mál
[19:10]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 55/1996, um tæknifrjóvgun, með síðari breytingum. Með frumvarpinu er lagt til að veittar verði tilteknar heimildir til að nota svonefnda umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna og jafnframt að heimilt verði í undantekningartilvikum að framkvæma kjarnaflutning, þ.e. einræktun í læknisfræðilegum tilgangi. Að baki þessum tillögum liggja veigamikil læknisfræðileg og þekkingarfræðileg rök sem nánar verða rakin hér á eftir.

Við setningu laga um þetta efni er óhjákvæmilegt að líta til þeirrar sérstöðu sem fósturvísar óneitanlega hafa vegna eðlis þeirra og eiginleika en almennt er litið svo á að fósturvísar hafi siðferðilega stöðu umfram önnur lífsýni sem notuð eru til rannsókna. Við lagasetningu um þetta efni verður því að taka afstöðu til þess hvort og þá í hvaða tilvikum réttlætanlegt sé að raska þeirri siðfræðilegu stöðu sem hér um ræðir. Eru ákvæði frumvarpsins grundvölluð á slíku hagsmunamati og við það miðuð að ekki séu veittar ríkari heimildir til notkunar fósturvísa eða til að framkvæma kjarnaflutning en nauðsynlegar og forsvaranlegar þykja til að ná þeim læknisfræðilegu og þekkingarfræðilegu markmiðum sem að er stefnt.

Frumvarpið er samið af nefnd sem skipuð var af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í október 2005 til að fjalla um nýtingu stofnfrumna til rannsókna og lækninga og semja drög að frumvarpi til laga um stofnfrumurannsóknir. Nefndin var skipuð sérfræðingum á sviði læknisfræði, líffræði, siðfræði og lögfræði og skilaði hún niðurstöðum sínum til mín í júní sl. í frumvarpsformi. Frumvarpsdrögin voru í framhaldi af því send fjölmörgum aðilum til umsagnar og voru þær umsagnir sem bárust almennt mjög jákvæðar.

Eins og áður segir felast tvær meginbreytingar í frumvarpinu. Annars vegar er lagt til að heimilt verði, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að nota svonefnda umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna. Við framkvæmd glasafrjóvgunar í æxlunarskyni eru að jafnaði búnir til fleiri fósturvísar en nýtast í því skyni. Ástæða þessa er fyrst og fremst sú að með því að búa til fleiri fósturvísa aukast líkurnar á því að til verði lífvænlegur fósturvísir til uppsetningar í leg konunnar. Þeir fósturvísar sem ekki eru valdir til uppsetningar en þykja þó lífvænlegir eru hins vegar að jafnaði geymdir í allt að fimm ár til hugsanlegrar notkunar síðar í samræmi við ákvæði laganna. Í þessu felst að löggjafinn hefur nú þegar tekið þá afstöðu að þeir hagsmunir sem í því eru fólgnir að aðstoða fólk við að eignast börn réttlæti að fósturvísar séu búnir til jafnvel þótt vitað sé að þeir muni ekki allir nýtast í þeim tilgangi.

Eins og áður segir er heimilt samkvæmt gildandi reglum að geyma fósturvísa sem búnir eru til vegna tæknifrjóvgunar í allt að fimm ár. Að þeim tíma liðnum er hins vegar skylt að eyða ónotuðum fósturvísum. Þeir fósturvísar sem þannig ganga af eru nefndir „umframfósturvísar“ í frumvarpinu og eru rannsóknarheimildir í frumvarpinu bundnar við þá. Gerir frumvarpið ráð fyrir því að í stað þess að eyða umframfósturvísum verði heimilt, með samþykki beggja kynfrumugjafa og vísindasiðanefndar, að ráðstafa þeim til rannsóknaraðila sem hafa fengið sérstakt leyfi til að nota umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna. Á hinn bóginn verður hér eftir sem hingað til með öllu óheimilt að búa til fósturvísa eingöngu í þeim tilgangi að gera á þeim rannsóknir. Frá siðfræðilegu sjónarhorni skiptir það máli þegar réttmæti þess að nota umframfósturvísa til rannsókna er metið að þeir hafi ekki gagngert verið búnir til í rannsóknarskyni heldur verði þeir til í tengslum við glasafrjóvgunarmeðferð sem framkvæmd er í þeim tilgangi að hjálpa fólki að eignast barn. Hér stendur valið einungis um að umframfósturvísum verði annaðhvort eytt eða þeir notaðir til að búa til stofnfrumulínur sem nýst geta til lækninga eða til að afla þekkingar í líf- og læknisfræði.

Niðurstaða nefndarinnar var sú að seinni kosturinn væri betri að því gefnu að gjafar þeirra kynfrumna sem fósturvísirinn er myndaður úr hefðu veitt upplýst samþykki sitt fyrir slíkri notkun. Sá kostur hefur því orðið ofan á í frumvarpinu. Samkvæmt núgildandi lögum er óheimilt að rækta fósturvísa lengur en í 14 daga utan líkamans eftir að frumrákin kemur fram. Myndun frumráka er fyrsti vottur af myndun taugakerfis hjá fósturvísi og á sér að jafnaði stað á 14. degi fósturþroska. Sú staðreynd að þetta tímamark er miðað við framangreindan áfanga í þroskaferli fósturvísis leiðir til þeirrar ályktunar að við setningu laga um tæknifrjóvgun árið 1996 hafi verið litið svo á að þá verði sú breyting á fósturvísi sem geri það að verkum að ekki þyki lengur forsvaranlegt að rækta hann utan líkamans eða gera á honum rannsóknir. Ljóst er því að núgildandi bann við ræktun og rannsóknir á fósturvísum eftir að þessu tímamarki er náð byggist einkum á sjónarmiðum um sterkari siðferðilega stöðu fósturvísa eftir að myndun taugakerfis hefst. Verður því að leggja til grundvallar að það hafi verið afstaða löggjafans við setningu laganna að fósturvísar öðlist aðra og sterkari siðferðilega stöðu eftir að framangreindu tímamarki er náð. Frumvarpið felur ekki í sér breytt mat að þessu leyti. Verða hinar nýju rannsóknarheimildir sem gerð er tillaga um í frumvarpinu því einungis notaðar til rannsókna á fósturvísum innan umræddra tímamarka eða áður en myndun taugakerfis hefst.

Auk heimilda til notkunar umframfósturvísa er í frumvarpinu lagt til að heimilt verði í undantekningartilvikum að framkvæma kjarnaflutning í þeim tilgangi að búa til stofnfrumulínur sem nýst geta til lækninga eða til að afla þekkingar í líf- og læknisfræði. Með kjarnaflutningi í frumvarpinu er átt við þá aðgerð þegar kjarni úr eggfrumu konu er fjarlægður og í hans stað komið fyrir kjarna úr líkamsfrumu. Með kjarnaflutningi af þessu tagi verður til fruma sem hefur sambærilega eiginleika og frjóvguð eggfruma eða fósturvísir. Sá grundvallarmunur er þó á að eggfruma sem kjarnaflutningur hefur verið framkvæmdur á hefur einungis erfðaefni úr einum einstaklingi á meðan frjóvguð eggfruma, þ.e. fósturvísir, hefur ávallt erfðaefni úr tveimur einstaklingum.

Heimild til kjarnaflutnings samkvæmt frumvarpinu er takmörkuð við þau tilvik þar sem ekki er talið unnt að ná sama árangri eða afla sömu þekkingar með notkun stofnfrumulína sem búnar eru til úr umframfósturvísum eða með öðrum hætti. Byggir þessi takmörkun á áðurgreindu sjónarmiði um að ekki skuli ganga lengra í þessu efni en nauðsynlegt er til að ná markmiðum um betri meðhöndlun sjúkdóma og öflun þekkingar í líf- og læknisfræði. Samkvæmt frumvarpinu verður einungis heimilt að framkvæma kjarnaflutning á rannsóknarstofum sem fengið hafa leyfi ráðherra til að stunda slíkar rannsóknir. Þá er jafnframt í hverju tilviki gerð krafa um samþykki eggfrumugjafa, þess einstaklings sem erfðaefnið stafar frá, og vísindasiðanefndar.

Það er samdóma álit flestra vísindamanna að kjarnaflutningur í þeim tilgangi að búa til stofnfrumulínur hafi mikilvæga kosti frá læknisfræðilegu sjónarmiði, einkum vegna þess að með kjarnaflutningi er unnt að tryggja fullt vefjasamræmi stofnfrumna við þá einstaklinga sem þarfnast lækninga. Þá er talið að stofnfrumur úr eggfrumum sem kjarnaflutningur hefur verið framkvæmdur á geti veitt vísindamönnum mikilvæga innsýn í sameindalíffræði ýmissa erfðasjúkdóma. Það er á grundvelli þessara mikilvægu hagsmuna sem heimildir til kjarnaflutnings í frumvarpinu eru byggðar. Í engu er hins vegar hvikað frá banni núgildandi laga við einræktun í æxlunartilgangi, þ.e. í þeim tilgangi að einrækta manneskju, en um slíkt bann er rík samstaða meðal þjóða heims enda felur slík einræktun í sér afar mörg og flókin siðfræðileg vandamál auk þess sem fá rök liggja til grundvallar því að styðja nauðsyn hennar eða gagnsemi fyrir einstaklinga eða samfélög. Þá hefur Ísland nú þegar undirgengist alþjóðlega sáttmála þar sem skýrlega er kveðið á um bann við einræktun manna. Í þessu sambandi er í frumvarpinu m.a. kveðið skýrt á um að það sé óheimilt á öllum stigum að koma eggfrumu sem kjarnaflutningur hefur verið framkvæmdur á fyrir í legi konu. Þá gerir frumvarpið jafnframt ráð fyrir því að sama regla gildi um eggfrumur sem kjarnaflutningur hefur verið framkvæmdur á og gildir um frjóvgaðar eggfrumur, þ.e. að óheimilt verður að rækta þær lengur en í 14 daga eða þar til frumrákin kemur fram.

Vísindamenn hafa í auknum mæli gert sér grein fyrir því að með rannsóknum á stofnfrumum er mögulegt að auka þekkingu okkar á samsetningu einstakra líkamsvefja og skilningi á því hvað fer úrskeiðis við upphaf og framþróun ýmissa sjúkdóma. Víst er talið að aukin þekking á þessu sviði muni nýtast við að skilgreina ferli sjúkdóma og þar með auka líkur á að hægt verði að bregðast við þeim fyrr og með markvissari hætti. Þá eru, eins og áður segir, miklar væntingar um að mögulegt verði að nýta stofnfrumur úr fósturvísum og eggfrumur sem kjarnaflutningur hefur verið framkvæmdur á við læknismeðferð ýmissa sjúkdóma. Þannig hefur nýlega verið sýnt fram á það í dýralíkömum að þessar frumur geta læknað eða dregið úr sjúkdómseinkennum sjúkdóma sem engin lækning er til við í dag. Má þar nefna sykursýki, vöðvarýrnun, hjartadrep og parkinsonsjúkdóminn. Þrátt fyrir þetta eru rannsóknir enn það skammt á veg komnar að ekki er unnt að fullyrða nokkuð um það hvort og þá í hversu miklum mæli stofnfrumur úr fósturvísum muni gagnast við sjúkdómsmeðferð á mönnum en auk framangreindra sjúkdóma hafa vísindamenn beint sjónum sínum að sjúklingum með tauga- og mænuskaða, MS-sjúkdóminn, MND-sjúkdóminn og krabbamein. Þó að enn sé óvíst hvort unnt verði að nota stofnfrumur úr fósturvísum til beinna lækninga eru vísindamenn sammála um að stofnfrumur úr fósturvísum séu og eigi eftir að reynast mikilvægar við lyfjaprófanir og til að auka skilning á uppruna og eðli ýmissa sjúkdóma sem síðar getur orðið grundvöllur nýrra meðferðarúrræða.

Á Íslandi eru stofnfrumurannsóknir vaxandi þó að enn séum við töluvert á eftir þeim þjóðum sem fremst standa í þessum efnum. Hafa rannsóknir hér á landi fyrst og fremst beinst að rannsóknum á vefjastofnfrumum, þ.e. stofnfrumur sem finna má í einstökum vefjum líkamans, m.a. í beinmerg og blóði. Þessar rannsóknir hafa vakið ýmsar spurningar er varða eðlilegan þroska þessara vefja en einnig hafa spurningar vaknað er varða afbrigðilegan þroska vefja, t.d. vegna krabbameinsmyndunar. Þá má geta þess að á Landspítala – háskólasjúkrahúsi hafa stofnfrumur úr blóði sjúklinga verið notaðar til stofnfrumuígræðslu. Þessar ígræðslur hafa nú verið stundaðar í um tvö ár og gengið mjög vel. Þá hafa íslenskir vísindamenn nýlega fengið stofnfrumulínu frá Bandaríkjunum til rannsókna og er það fyrsta rannsóknarverkefnið hér á landi þar sem notaðar eru stofnfrumur úr fósturvísum. Einnig hafa íslenskir vísindamenn verið í góðu samstarfi við marga af fremstu vísindamönnum heimsins á sviði stofnfrumurannsókna.

Í athugasemdum með frumvarpinu er gerð allítarleg grein fyrir stöðu og þróun löggjafar á þessu sviði í öðrum löndum, einkum Norðurlöndunum og í Evrópu. Í ljósi þess vaxandi skilnings sem er á mikilvægi stofnfrumurannsókna með tilliti til mögulegra framfara í læknisfræði og lyfjaþróun og þeim árangri sem þegar hefur náðst er óhætt að fullyrða að þróunin hefur á undanförnum árum fremur verið í átt til aukins frjálsræðis. Það lýsir sér í því að æ fleiri ríki kjósa nú að heimila notkun umframfósturvísa til stofnfrumurannsókna að einhverju marki og þeim ríkjum fjölgar jafnframt sem heimila kjarnaflutning í læknisfræðilegum tilgangi. Mikilvægt er að Alþingi og heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með þessari þróun og skapi vísindarannsóknum af þessu tagi hér á landi þá lagaumgjörð sem nauðsynleg er og forsvaranleg getur talist, annars vegar með hliðsjón af þeim læknisfræðilegu og þekkingarfræðilegu hagsmunum sem í húfi eru og hins vegar með hliðsjón af þeim siðferðilegu álitaefnum sem uppi eru og þeim siðferðilegu grundvallargildum sem halda ber í heiðri við framkvæmd stofnfrumurannsókna. Við samningu þessa frumvarps hefur eftir fremsta megni verið reynt að feta hinn gullna meðalveg í þessum efnum.

Virðulegur forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. heilbrigðis- og tryggingamálanefndar og til 2. umr.