133. löggjafarþing — 68. fundur,  7. feb. 2007.

jafnréttisumsögn með stjórnarfrumvörpum.

487. mál
[13:54]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Mörður Árnason hefur beint til mín fyrirspurn varðandi undirbúning að jafnréttisumsögnum sem fylgi stjórnarfrumvörpum.

Í þingsályktun um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum frá árunum 1998 og 2004 er það markmið sett að samstarfshópur þriggja ráðuneyta kynni sér jafnréttisumsagnir með stjórnarfrumvörpum á öðrum Norðurlöndum og í framhaldi af því verði stofnað til tilraunaverkefnis þar sem gefnar verða jafnréttisumsagnir um nokkur stjórnarfrumvörp frá þremur ráðuneytum. Þetta skyldi gert í því augnamiði að koma á reglubundnu mati á stjórnarfrumvörpum með tilliti til jafnréttis kynjanna. Því var slegið föstu að starfshópurinn mundi semja gátlista í þessu skyni, eins og reyndar hv. þingmaður rakti áðan.

Samstarfshópur þriggja ráðuneyta var skipaður en verkefnið þótti skarast nokkuð við verkefni forsætisráðuneytisins um útgáfu gátlista til jafnréttismats á lagafrumvörpum og opinberri stefnumótun. Það var því ákveðið að bíða eftir útgáfu þessa gátlista. Við endurmat á verkefninu þótti ekki ástæða til að halda því áfram heldur hvetja ráðuneytið til að nýta sér jafnréttisgátlistann við gerð frumvarpa og aðra opinbera stefnumótun. Enn fremur lagði félagsmálaráðuneytið til að samþætting kynja og jafnréttissjónarmiða verði eitt af þeim atriðum sem stjórnvöldum ber að líta til við endurskoðun laga og reglugerða undir verkefninu Einfaldara Ísland.

Í samræmi við framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árið 1998–2001 skipaði forsætisráðherra í nóvember 2000 nefnd til að fjalla um jafnrétti kynjanna við opinbera stefnumótun. Í skýrslu nefndarinnar er m.a. að finna tillögu að jafnréttisgátlista sem lagður var til grundvallar í samvinnu forsætisráðuneytisins og Jafnréttisstofu við nánari útfærslu verkefnisins. Ákveðið var að stytta listann og færa efnið í samfelldara mál. Gátlistinn hefur að geyma fjóra meginþætti sem fela í sér spurningar ásamt skýringum. Þegar sá sem vinnur að stefnumótun í hvaða formi sem er hefur farið yfir listann er gert ráð fyrir að fengist hafi nokkuð skýr mynd af stöðu jafnréttismála í þeim málaflokki sem væntanleg stefnumótun tekur til.

Auk gátlistans hefur verið sett upp sjálfsmat á rafrænu formi til frekari stuðnings fyrir þá sem koma að vinnu við stefnumótun í samræmi við kynja- og jafnréttissjónarmið. Jafnréttisgátlistinn verður jafnframt gefinn út í formi bæklings. Á baki hans verður enn fremur vísað til frekari upplýsinga um jafnréttismál á rafrænu formi. Bæklinginn sjálfan verður unnt að nálgast á rafrænu formi ásamt sjálfsmatinu á vefsíðu forsætisráðuneytisins. Gátlistanum verður sérstaklega dreift til ráðuneytanna, Alþingis, stofnana og sveitarfélaga. Einnig verði þess óskað að ráðuneytin og sveitarfélögin sendi eintak af listanum til allra nefnda, ráða og stjórna á þeirra vegum sem vinna beint eða óbeint að opinberri stefnumótun.

Rétt er að árétta að gátlisti er nytsamlegt tæki fyrir Alþingi, ráðuneyti, sveitarstjórnir, stofnanir, fyrirtæki, nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga til að tryggja að jafnréttissjónarmiða verði gætt við stefnumótunarvinnu en tæki til að auka jafnrétti eiga að vera aðgengileg stjórnendum á öllum sviðum samfélagsins. Gátlisti af þessu tagi var eitt af þeim tækjum sem nefnd um hlut kvenna í opinberri stefnumótun lagði til.

Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. fyrirspyrjanda um það að mikilvægt er að stjórnvöld og þeir sem koma að stefnumótun og smíði laga og reglugerða hafi jafnréttissjónarmið til hliðsjónar í störfum sínum. Á það vil ég leggja mikla áherslu og hef trú á að umræddur gátlisti verði þar raunverulegt tæki til breytinga.

Virðulegi forseti. Ég hef þá svarað þeirri fyrirspurn sem hv. þm. lagði fyrir mig.