133. löggjafarþing — 70. fundur,  13. feb. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[13:30]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Forseti vill geta þess að að loknum 15 fyrstu dagskrármálunum hefst umræða utan dagskrár um samkeppnisstöðu Vestmannaeyja og landsbyggðarinnar. Málshefjandi er hv. þm. Lúðvík Bergvinsson. Hæstv. iðnaðarráðherra Jón Sigurðsson verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.