133. löggjafarþing — 70. fundur,  13. feb. 2007.

rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

542. mál
[21:08]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég sagði ekki að þessi stefna Samfylkingarinnar væri tekin úr því frumvarpi sem hér er til umræðu heldur úr þeim nefndarstörfum sem liggja því til grundvallar.

Ég endurtek hins vegar það sem ég hef áður sagt: Það sem er hættulegt er þessi stopp/stopp-stefna því að hún er mjög varhugaverð og mun hafa mjög vond áhrif á Íslandi eins og annars staðar.