133. löggjafarþing — 73. fundur,  19. feb. 2007.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

588. mál
[20:51]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi lög um veitinga- og gististaði, hluta áfengislaga og lög um heimild til að marka skemmtunum og samkomum tíma. Það er afrakstur starfa dómsmálaráðuneytis og samgönguráðuneytis auk þess sem fulltrúar umhverfisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga komu að því.

Megintilgangurinn með frumvarpinu er að einfalda leyfisveitingar til reksturs veitinga- og gististaða og draga úr þeim fjölda gagna sem nú þarf. Einnig er tilgangurinn að gera lagaumhverfið sem um þessa starfsemi gildir skýrara og einfaldara og það sé að finna í einum lagabálki í stað þess að vera á víð og dreif í löggjöfinni eins og nú er.

Þá felast í frumvarpinu breytingar á gjaldtöku sem almennt hafa í för með sér minni álögur á starfsemina en samkvæmt gildandi lögum. Ég tel rétt í upphafi að fara yfir það í örstuttu máli hvernig staða leyfismála á þessu sviði er samkvæmt gildandi lögum.

Ef ætlunin er að opna veitingastað þarf almennt að sækja um sex leyfi. Þar er fyrst að nefna að liggja þarf fyrir byggingarleyfi sveitarstjórnar vegna húsnæðis sem reksturinn er fyrirhugaður í. Í öðru lagi er veitingarekstur háður starfsleyfi heilbrigðisnefndar. Í þriðja lagi þarf að sækja um veitingaleyfi sem gefið er út af lögreglustjórum og grundvallast það á þeirri starfsemi sem ætlunin er að fari fram á staðnum, t.d. hvort um er að ræða kaffihús eða skemmtistað. Veitingaleyfið felur þó ekki í sér heimild til að selja eða veita áfengi heldur þarf til þess sérstakt áfengisleyfi sem gefið er út af sveitarstjórn. Það er fjórða leyfið sem þarf að sækja um. Í fimmta lagi þarf staður sem ætlar að hafa opið lengur en til kl. hálftólf að kvöldi að hafa sérstakt skemmtanaleyfi sem gefið er út af lögreglustjóra. Sjötta leyfið er síðan tóbakssöluleyfi sem gefið er út af heilbrigðisnefndum.

Öllum þessum leyfum fylgir síðan mismunandi umsóknarferli og gagnaöflun. Það hefur verið talið frekar þungt í vöfum og kallað á margs konar snatt og snúninga þeirra sem vilja reka veitinga- eða gististaði. Þessi leyfi hafa einnig mismunandi gildistíma sem þýðir að endurnýja þarf þau á mismunandi tímum. Auk þess þarf við endurnýjun sumra þeirra að fara í gegnum sama ferlið og þegar sótt var um leyfið í upphafi. Eins og sjá má af þessu eru mál að því er varðar rekstur veitinga- og gististaða á hendi margra og kerfið langt frá því að vera einfalt og aðgengilegt fyrir þá sem þurfa þessi leyfi.

Eins og áður sagði er megintilgangurinn með frumvarpinu að einfalda og gera skýrara það lagaumhverfi sem þessi starfsemi býr við, sérstaklega leyfisveitingar og gagnaöflun. Allnokkur aðdragandi er að frumvarpinu enda hefur á undanförnum árum mikið verið rætt um að einfalda þurfi leyfisveitingar og draga úr þeim fjölda leyfa sem þarf að afla fyrir þessa starfsemi. Frumvarpið á sér þó nokkurn aðdraganda og má rekja upphafið allt til ársins 2002. Í október það ár barst umhverfisráðuneytinu bókun samtaka heilbrigðisnefnda þar sem fram kom nauðsyn þess að samræma skilgreiningarhugtak er varðar veitinga- og gististaði og vinnubrögð þeirra ráðuneyta og stofnana sem koma að þessum málum. Í framhaldinu boðaði umhverfisráðherra til fundar með fulltrúum samgönguráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, Hollustuverndar ríkisins, heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og Samtaka ferðaþjónustunnar og varð það niðurstaða fundarins að settur yrði á fót starfshópur ráðuneytanna sem skyldi gera tillögur að m.a. einföldun leyfisveitinga. Var meginniðurstaða starfshópsins sú að sameina þyrfti einhver leyfanna og koma útgáfu þeirra á eina hendi.

Í framhaldinu var samgönguráðuneytinu fengið umboð til að fela lögfræðingum í þessum ráðuneytum auk fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga að gera tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum. Hópurinn skilaði bráðabirgðaniðurstöðu í maí 2006 þar sem lögð var til veruleg einföldun leyfisveitingakerfisins. Í kjölfarið var fulltrúum dómsmálaráðuneytis og samgönguráðuneytis í starfshópnum falið að semja lagafrumvarp í samræmi við tillögurnar. Frumvarpið sem hér er kynnt er afrakstur þeirrar vinnu. Við samningu þess var haft víðtækt samráð við hagsmunaaðila, bæði leyfishafa og leyfisveitendur, sérstaklega Reykjavíkurborg og lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu en gera má ráð fyrir að þessir aðilar komi að langflestum leyfisveitingum á þessu sviði.

Í frumvarpinu sem hér er lagt fram er að finna ýmis nýmæli og breytingar á gildandi lögum og er rétt að rekja í stuttu máli það helsta. Fyrst ber að nefna að lagt er til að yfirstjórn mála er varða veitinga- og gististaði færist frá samgönguráðuneyti til dómsmálaráðuneytis. Tillaga þessi grundvallast á því að í frumvarpinu er lagt til að leyfisveitingar verði í höndum eins aðila og á sá aðili undir það ráðuneyti. Þá er lögð til sú breyting á gildissviði frumvarpsins að það sé einnig látið ná til sölu og veitingar áfengis. Þar með eru ákvæði um sölu og veitingu hvers kyns veitinga, bæði í föstu og fljótandi formi, áfengra eða óáfengra, að finna í sama lagabálki. Samhliða þessu er lagt til að þau ákvæði áfengislaga sem fjalla um veitingar áfengis verði felld niður.

Ein af mikilvægustu tillögum frumvarpsins er að núverandi veitinga- og gistileyfi og áfengisveitinga- og skemmtanaleyfi verði sameinuð í eitt leyfi sem kallast rekstrarleyfi. Þar með er afnumið það fyrirkomulag að sækja þurfi um þrjú aðskilin leyfi til starfseminnar sem undir frumvarpið fellur og felur það í sér mikla einföldun og hagræðingu fyrir umsækjendur. Af þessari sameiningu leyfa í eitt rekstrarleyfi leiðir að leyfisveitandi verður einungis einn og er lagt til í frumvarpinu að sýslumönnum verði falin leyfisveitingin en á höfuðborgarsvæðinu verði það lögreglustjóri sem gefur út leyfin í hans stað.

Í tillögu þessari felst að útgáfa áfengisleyfa er flutt frá sveitarstjórnum enda lagt til í frumvarpinu, eins og áður sagði, að ákvæði gildandi áfengislaga um veitingu áfengis verði felld niður og í stað þess fjallað um veitingu áfengis í frumvarpinu. Þá er lagt til að hægt verði að sækja um starfsleyfi heilbrigðisnefnda samhliða rekstrarleyfi en frumvarpið gerir ráð fyrir að slíkt starfsleyfi sé áfram ófrávíkjanlegt skilyrði rekstrarleyfis. Til einföldunar er gert ráð fyrir að umsækjandi geti sótt um þetta leyfi um leið og hann sækir um rekstrarleyfi.

Rétt er að taka fram að frumvarpið gerir ráð fyrir að áfram þurfi byggingarleyfi sveitarstjórnar þar sem það á við og er gert að skilyrði að það liggi fyrir við umsókn enda er það skilyrði þess að starfsemi sé heimil í viðkomandi húsnæði.

Flokkun gisti- og veitingastaða er breytt verulega frá gildandi lögum. Felast breytingarnar í því að lagt er til að flokkunin miðist við þá starfsemi sem fer fram og þau áhrif sem hún kann að hafa á umhverfið í staðinn fyrir að miða flokkun við búnað eða úrval veitinga eins og nú er. Hér er ekki um neinar sérstakar efnislegar breytingar að ræða á því hvaða starfsemi er leyfisskyld frá því sem er í gildandi lögum heldur snúa breytingarnar að því hvernig þessir staðir eru flokkaðir. Með þessu verður auðveldara fyrir leyfisveitendur og umsagnaraðila að meta hvaða skilyrði þarf að setja fyrir rekstrinum eftir áhrifum á umhverfi og aðstæðum hverju sinni.

Þá er að nefna annan mikilvægan tilgang frumvarpsins sem varðar einföldun á umsóknarferli. Sú einföldun felst fyrst og fremst í því að hægt verður að sækja um rafrænt auk þess sem gagnaöflun getur verið rafræn þar sem því verður við komið. Einnig verður lögð til sú mikilvæga breyting að gagnaöflun sé takmörkuð við umsækjanda og forsvarsmenn lögaðila eingöngu. Þá má nefna þá breytingu sem frumvarpið felur í sér, að settar eru skýrar reglur um þær umsagnir sem leita skal áður en rekstrarleyfi er gefið út. Áfram er gert ráð fyrir að leita skuli umsagna ákveðinna aðila en hins vegar er lagt til að umsagnir verði bindandi. Þar með verður óheimilt að gefa út rekstrarleyfi ef einhver umsagnaraðila leggst gegn því. Með þessu er verið að lögfesta það fyrirkomulag sem hefur hingað til gilt í framkvæmd, sem sé það að þótt umsagnir séu ekki bindandi samkvæmt gildandi lögum er ávallt farið eftir þeim.

Mikilvæg tillaga frumvarpsins snýr að gildistíma rekstrarleyfis en lagt er til að leyfið gildi í fjögur ár. Með tillögunni er afnuminn sá mismunandi gildistími leyfanna sem nú þarf og er það til mikillar einföldunar og hagræðis fyrir rekstraraðila, svo sem vegna endurnýjunar. Í frumvarpinu er lagt til að endurnýjunarferlið verði einfaldað til muna. Felst það fyrst og fremst í því að hægt verði að endurnýja leyfið án þess að fram þurfi að fara umfangsmikil gagnaöflun eða umsagnarferli eins og samkvæmt gildandi lögum. Það gildir þó fyrst og fremst fyrir þá sem hafa verið með reksturinn í lagi á leyfistíma og ef ekki er um neinar breytingar að ræða á starfseminni.

Þá er í frumvarpinu kveðið á um tilkynningarskyldu þeirra aðila sem hafa eftirlit með þeirri starfsemi sem fellur undir frumvarpið á grundvelli annarra laga, svo sem heilbrigðisnefndar, Vinnueftirlits, slökkviliðs og lögreglu. Skulu þessir aðilar tilkynna leyfisveitendum allar alvarlegar athugasemdir við reksturinn. Er m.a. gert ráð fyrir því í frumvarpinu að leyfisveitandi líti til þeirra athugasemda við endurnýjun auk þess sem hann skal leita þeirra upplýsinga sem hann telur nauðsynlegar.

Í frumvarpinu er einnig fjallað um leyfi sem þarf í einstökum tilvikum og eru lögð til skýrari ákvæði en samkvæmt gildandi lögum. Hér er um tvenns konar leyfi að ræða, annars vegar tækifærisleyfi fyrir einstökum atburðum og skemmtunum sem fram fara utan staða sem hafa rekstrarleyfi og hins vegar tímabundin áfengisveitingaleyfi vegna sölu eða afhendingar áfengis við einstök tækifæri í atvinnuskyni.

Þá eru lögð til í frumvarpinu skýrari viðurlög við brotum. Helsta nýmælið er að lagt er til að lögreglu verði gert skylt að loka stöðum sem stunda starfsemi sem ekki er rekstrarleyfi fyrir eða samrýmist ekki gildandi rekstrarleyfi. Hefur þótt skorta slík ákvæði í gildandi lög og það hefur leitt til þess að ekki hefur verið hægt að grípa nógu tímanlega til nauðsynlegra aðgerða gegn þeim sem eru brotlegir til að það komi að gagni. Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu á flokkun staða og sameiningu leyfa í eitt rekstrarleyfi leiða óhjákvæmilega til breytinga á gjaldtökunni. Sú breyting sem mestu skiptir er að skemmtanaleyfi í þeirri mynd sem það er nú er fellt niður án þess að annað gjald komi í staðinn og þýðir þetta verulega minni álögur á þá staði sem áður þurftu skemmtanaleyfi.

Ég hef nú stuttlega, virðulegur forseti, rakið helstu breytingar og nýmæli sem felast í frumvarpinu en auk þess er að finna þar skýrari reglur er varða breytingar á leyfi og leyfishafa og einnig um synjun, brottfall, afturköllun og sviptingu rekstrarleyfis. Þær reglur miða að því að reglur um þetta séu skýrar og að réttaröryggis rekstrarleyfishafa sé gætt. Þá er lagt til að meðal skilyrða fyrir rekstrarleyfi sé að umsækjandi sé skuldlaus við skattinn og hafi sent viðeigandi tilkynningar til skattyfirvalda um reksturinn, svo sem vegna virðisaukaskatts og staðgreiðslu skatta. Einnig er lagt til að tryggingar sem handhafar áfengisveitingaleyfis þurfa nú að leggja fram verði afnumdar enda er um sérstaka tryggingu að ræða sem enginn annar atvinnurekstur býr við nema um neytendavernd sé að ræða en svo er ekki í þessu tilviki.

Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja frekar þær breytingar og þau nýmæli sem felast í frumvarpinu. Ekki er vafamál að um mikilvæga löggjöf er að ræða. Eins og rakið var í upphafi hefur lengi verið þrýst á að gildandi lögum verði breytt og reglur um leyfisveitingar og annað sem þessa starfsemi varðar gerðar einfaldari og skýrari. Ég tel að með frumvarpinu sé að verulegu leyti komið til móts við þær kröfur án þess þó að á nokkurn hátt sé slakað á öryggiskröfum og nauðsynlegu eftirliti, svo sem vegna hollustuhátta, eldvarna og vinnuöryggis. Þvert á móti tel ég að í frumvarpinu felist skýrari rammi um þessa starfsemi og því sé auðveldara um vik að gæta öryggis og almannaheilla auk þess sem skýrt er kveðið á um úrræði ef út af er brugðið.

Virðulegur forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgöngunefndar.