133. löggjafarþing — 74. fundur,  20. feb. 2007.

aukatekjur ríkissjóðs.

358. mál
[18:45]
Hlusta

Sæunn Stefánsdóttir (F):

Frú forseti. Ég geri grein fyrir nefndaráliti hv. efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Völu Rebekku Þorsteinsdóttur frá fjármálaráðuneyti. Þá bárust nefndinni umsagnir frá Neytendastofu og Viðskiptaráði.

Í 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs er veitt heimild til að taka gjald fyrir útgáfu leyfa og skírteina vegna veitingar atvinnuréttinda og tengdra réttinda. Er um að ræða gjald að fjárhæð 5.500 kr. Í 22. tölulið ákvæðisins eru talin upp þau starfsheiti sem lög nr. 8/1996, um löggildingu nokkurra starfsheita í tækni- og hönnunargreinum, gilda um. Á síðastliðnu vori voru gerðar breytingar á þessum lögum sem miðuðu að því að löggilda starfsheiti grafískra hönnuða með því að bæta þeim við upptalninguna í lögunum. Þykir því rétt samræmis vegna að bæta við heimild í lög um aukatekjur ríkissjóðs um gjaldtöku fyrir útgáfu leyfa fyrir grafíska hönnuði.

Nefndin leggur til viðbætur við frumvarpið, þ.e. að bætt verði inn gjaldtökuheimildum fyrir löggildingu vigtarmanna og rafverktaka. Hér er hvorki um nýja né breytta gjaldtöku að ræða, heldur einungis verið að treysta lagagrundvöllinn fyrir þeirri gjaldtöku sem fyrir er.

Með hliðsjón af þessu leggur nefndin til að frumvarpinu verði breytt með þeim breytingum sem ég gerði grein fyrir. Undir nefndarálitið skrifa Pétur H. Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, Dagný Jónsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, Birgir Ármannsson, Ágúst Ólafur Ágústsson og Ásta Möller. Hv. þingmenn Jóhanna Sigurðardóttir, Sæunn Stefánsdóttir og Ögmundur Jónasson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.