133. löggjafarþing — 74. fundur, 20. feb. 2007.
úrvinnslugjald.
451. mál
Hæstv. forseti. Það var nú ekki vegna sendinga til stjórnarandstöðunnar sem ég ætla að veita andsvar við ræðu hv. þingmanns, heldur til að spyrja um það hvort í nefndinni hafi verið fjallað um dagblaðapappír. Ég óska eftir svörum hv. þingmanns um það hvar það mál er statt. Ætla menn að geyma það mjög lengi að taka úrvinnslugjald á dagblaðapappír?