133. löggjafarþing — 76. fundur,  21. feb. 2007.

meðferðarúrræði fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga.

[15:30]
Hlusta

Forseti (Birgir Ármannsson):

Nú hefst áður boðuð utandagskrárumræða um meðferðarúrræði fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga. Málshefjandi er hv. þm. Margrét Frímannsdóttir. Hæstv. heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.