133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

686. mál
[14:16]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.

Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á vörugjaldi af bifreiðum sem nýta metangas að verulegu leyti í stað bensíns eða dísilolíu. Er lagt til að umræddar bifreiðar verði undanþegnar vörugjaldi tímabundið til ársloka 2008. Það er til samræmis við gildistíma tímabundinna undanþágna vörugjalda af vetnis- og rafmagnsbifreiðum samkvæmt núgildandi lögum. Gert er ráð fyrir að fyrir árslok 2008 verði mótuð heildarstefna um skattlagningu bifreiða sem nýta umhverfisvæna orkugjafa.

Með frumvarpi þessu er stefnt að því að gera metangasbifreiðar ákjósanlegri kost en nú er við val á bifreið og er lagt til að framangreindar bifreiðar verði nú að fullu undanþegnar vörugjaldi en hingað til hafa þær notið 240.000 kr. eftirgjafar af vörugjaldi. Ætla má að þær aðgerðir sem hér eru lagðar til muni stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda og jafnframt koma í veg fyrir þá sóun orku sem felst í því að nýta ekki hauggasið á bifreiðar.

Til að sporna við misnotkun er lagt til að óheimilt verði að fjarlægja metangasbúnað eða gera breytingar á eldsneytisgeymum bifreiða sem notið hafa niðurfellingar vörugjalds samkvæmt frumvarpinu. Ákvæðinu er m.a. ætlað að koma í veg fyrir að fluttar verði inn metangasbifreiðar sem síðan verði eingöngu notaðar sem bensínbifreiðar.

Reikna má með því að undanþágan leiði til þess, að teknu tilliti til afleiddra áhrifa á virðisaukaskatt, að lækkun á söluverði slíkra bifreiða verði á bilinu 25–30% eftir því hvort um er að ræða smábíla eða stærri jeppa. Samkvæmt lauslegum útreikningum má gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af miðlungsstórum fólksbíl verði hátt í 500 þús. kr. lægri en ef greitt væri fullt vörugjald og virðisaukaskattur af því. Þó þarf að hafa í huga að samkvæmt bráðabirgðaákvæði í gildandi lögum er heimilt að fella niður 240 þús. kr. af vörugjaldi á bifreiðum af þessum toga þannig að mismunur eftir afgreiðslu þessa frumvarps yrði þá um 250 þús. kr. á meðalfólksbíl. Afar erfitt er að spá fyrir um það í hvaða mæli fyrirtæki og einstaklingar muni kaupa bifreiðar með þessum búnaði í kjölfar slíkrar verðlækkunar.

Hauggasi hefur á undanförnum árum verið safnað saman á urðunarsvæði Sorpu í Álfsnesi og það hreinsað og metan skilið úr hauggasinu til notkunar á bifreiðar. Metan er skæð gróðurhúsalofttegund, um tuttugu sinnum öflugri en koltvísýringur. Það er því æskilegt að metaninu sé safnað saman og brennt, og eytt þannig sem gróðurhúsalofttegund.

Flestir bifreiðaframleiðendur bjóða eina eða fleiri tegundir metangasbifreiða. Í þeim eru venjulegar bensínvélar sem breytt er smávægilega svo þær geti einnig brennt metani en jafnframt eru fáanlegar bifreiðar sem eingöngu ganga fyrir metani.

Í dag eru um 50 bifreiðar hér á landi sem ganga fyrir metangasi að hluta eða öllu leyti. Með því að fjölga metangasbifreiðum má koma í veg fyrir þá sóun á orku sem felst í því að nýta ekki hauggasið sem orkugjafa.

Metan er selt á einni dælustöð á höfuðborgarsvæðinu og er undanþegið eldsneytisgjöldum. Verð á metani er því mjög hagstætt og svarar til þess að bensínlítrinn kostaði tæpar 80 kr.

Verði frumvarpið að lögum er áætlað að það muni ekki hafa teljandi áhrif á kostnað skattkerfisins og umsýslu þessara mála frá því sem nú er.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.