133. löggjafarþing — 87. fundur,  13. mars 2007.

breytingar á ýmsum lögum er varða útgáfu leyfa o.fl.

654. mál
[22:38]
Hlusta

Frsm. allshn. (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir nefndaráliti frá allsherjarnefnd um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum er varða útgáfu leyfa og fleira. Á fund nefndarinnar komu ýmsir aðilar, m.a. frá dómsmálaráðuneyti og Sýslumannafélagi Íslands, Lögreglustjórafélagi Íslands og embætti ríkislögreglustjóra.

Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum sem varða útgáfu leyfa af hálfu sýslumanna og lögreglustjóra. Við gildistöku laga nr. 46/2006, um breytingu á lögreglulögum, og lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, urðu umfangsmiklar breytingar á skipan lögreglumála. Ein afleiðing þeirra breytinga er að nú fara 11 sýslumenn ekki lengur með lögreglustjórn í umdæmum sínum. Frumvarpið er lagt fram með það í huga að almenningur geti áfram sótt sömu þjónustu við útgáfu leyfa í sínu byggðarlagi, hvort sem sýslumaður hefur einnig með höndum lögreglustjórn eða ekki. Nefndin leggur til þá breytingu á 3. gr. frumvarpsins að í stað þess að allir sýslumenn á landinu nema sýslumaðurinn í Reykjavík, en í stað hans lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, gefi út ökuskírteini verði útgáfunni fundinn miðlægur staður hjá embætti ríkislögreglustjórans. Þetta helgast m.a. af því að það er heppilegra í samskiptum við erlenda aðila að hafa einn útgefanda að öllum íslenskum ökuskírteinum, auk þess sem þetta fyrirkomulag tryggir að hér á landi verði einn sameiginlegur gagnagrunnur fyrir útgefin ökuskírteini.

Nefndin leggur til að ákvæði b- og c-liðar 14. gr. frumvarpsins sem breytir 7. gr. vopnalaga verði látin bíða heildarendurskoðunar vopnalaga. Hvetur nefndin til þess að slík endurskoðun fari fram svo fljótt sem verða má.

Þá tekur nefndin fram að í athugasemdum við frumvarpið er á tveimur stöðum að finna smávægilegar villur, annars vegar í athugasemdum við 2. gr. frumvarpsins þar sem vísað er til embættis lögreglustjórans og sýslumannsins á Suðurnesjum í stað embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum og sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli eins og rétt er. Hins vegar ætti í athugasemdum við c-lið 12. gr. frumvarpsins að standa að útgáfa innflutningsleyfa í atvinnuskyni verði falin lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu en ekki „þeim“ eins og þar stendur.

Á þskj. 1073 er að finna breytingartillögur nefndarinnar. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum, en þó ber að geta þess að þeir hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson og Ellert B. Schram hafa skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara sem lýtur að ákvæðum vopnalaga.