frumvarp til stjórnarskipunarlaga.
Virðulegi forseti. Þessi síðasta ræða hjá formanni Framsóknarflokksins var með miklum ólíkindum. Hann lýsti atburðarás sem ég hygg að fáir eða engir í þessum sal kannist við. Það var alveg ótrúlegt að hlusta á þetta. (Gripið fram í.)
Málið er að stjórnarflokkarnir settu í stjórnarsáttmála sinn fyrir fjórum árum klausu um að auðlindir sjávar ættu að vera sameign íslensku þjóðarinnar og að það yrði bundið í stjórnarskrá. Fjögur ár hafa þessir flokkar haft til að undirbúa það að efna þetta loforð eða koma því í framkvæmd, fjögur ár. Það er núna fyrst, fjórum dögum fyrir þinglok, sem kemur illa ígrunduð og illa orðuð tillaga um það hvernig þessu skuli háttað. Það er ekkert samráð haft um þetta við fulltrúa stjórnarandstöðunnar, ekkert. Tveir fulltrúar framkvæmdarvaldsins, tveir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, koma með þetta frumvarp inn í Alþingi. Annar þeirra er ekki einu sinni kosinn á þing og hefur ekki umboð frá kjósendum til lagasetningar í þessu landi. Þetta eru vinnubrögðin hjá þessum háu herrum, þetta er það sem blasir við.
Hvers vegna skyldi þetta vera? Jú, það er verið að reyna að draga fjöður yfir það að ríkisstjórnin, sem nú fer að syngja sitt síðasta, södd lífdaga, geti dregið athyglina frá því að hún hefur varla staðið við einn einasta staf í því sem stóð í stjórnarsáttmálanum um það sem hún ætlaði að gera hér í byggðamálum og sjávarútvegsmálum. Það er hin nakta, ískalda staðreynd sem blasir við okkur, það blasir við okkur núna, virðulegi forseti, (Gripið fram í.) að þetta hafa verið eintóm svik. Ég hvet sérstaklega þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að lesa yfir stjórnarsáttmálann (Forseti hringir.) og fara yfir það lið fyrir lið hvernig þeir hafa svikið allt sem þeir lofuðu. Það sést líka best á því í hvaða ástandi sjávarbyggðir landsins eru núna eftir 12 ára setu þessarar ríkisstjórnar.
(Forseti (JónK): Ég vil biðja hv. þingmenn að hafa hljóð og gefa ræðumönnum hljóð í salnum.)