133. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2007.

Varamenn taka þingsæti.

[11:04]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá 9. þm. Reykv. n. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, dagsett 15. mars sl.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykv. n., Ellert B. Schram fyrrverandi ritstjóri taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Ellert B. Schram hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.