133. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2007.

samningar um gagnkvæma réttaraðstoð.

652. mál
[17:57]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Halldór Blöndal) (S):

Frú forseti. Þessi tillaga er um staðfestingu samninga milli Evrópusambandsins og lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs og gagnkvæma réttaraðstoð og staðfestingu ákvörðunar ráðherraráðs Evrópusambandsins nr. 2003/169/JHA.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Martin Eyjólfsson og Sesselju Sigurðardóttur frá utanríkisráðuneyti og Dís Sigurgeirsdóttur frá dómsmálaráðuneyti.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta tvo samninga, eins og ég gat um áður, milli Íslands, Noregs og ríkja Evrópusambandsins um málsmeðferð við afhendingu milli aðildarríkja Evrópusambandsins og Íslands og Noregs og gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum. Þá er leitað heimildar Alþingis til að samþykkja ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins um það hvaða ákvæði samningsins frá 1995 um einfaldaða málsmeðferð við framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins og samnings frá 1996 um framsal milli aðildarríkja Evrópusambandsins teljist vera þróun á Schengen-gerðunum samkvæmt samningnum um þátttöku lýðveldisins Íslands og konungsríkisins Noregs í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna.

Samkvæmt upplýsingum sem nefndin hefur fengið er gert ráð fyrir að ekki verði horfið frá þeirri tilhögun sem ríkt hefur að íslenskir ríkisborgarar verði ekki framseldir til annarra ríkja.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.