133. löggjafarþing — 91. fundur,  16. mars 2007.

samningur milli Fríverslunarsamtaka Evrópu og Egyptalands.

684. mál
[18:01]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Halldór Blöndal) (S):

Frú forseti. Þessi tillaga fjallar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og arabíska lýðveldisins Egyptalands. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Friðrik Jónsson og Einar Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti.

Fríverslunarsamningurinn er fyrst og fremst til vöruviðskipta en einnig eru ákvæði um vernd hugverkaréttinda, fjárfestingar, þjónustustarfsemi, fjármagnsflutninga, samkeppnismál og fleira. Á vörusviðinu er kveðið á um að Egyptar felli niður tolla á aðrar vörur en landbúnaðarvörur í áföngum auk þess sem kveðið er á um tollkvóta fyrir flestar mikilvægustu sjávarafurðir Íslands. Kvótarnir verða stækkaðir í áföngum á sex ára tímabili uns fullri fríverslun verður komið á.

Sérhvert EFTA-ríki gerir tvíhliða samkomulag við Egyptaland um lækkun eða niðurfellingu tolla á tilteknar landbúnaðarvörur og mun Ísland t.d. fá markaðsaðgang fyrir lifandi hross til Egyptalands og 2000 tonna tollkvóta fyrir lambakjöt.

Viðskipti milli Íslands og Egyptalands undanfarin ár hafa verið lítil en fullgilding fríverslunarsamningsins eykur vafalaust möguleika á frekari viðskiptum. Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.