133. löggjafarþing — 93. fundur,  17. mars 2007.

íslensk alþjóðleg skipaskrá.

667. mál
[15:33]
Hlusta

Frsm. samgn. (Guðmundur Hallvarðsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég flyt nefndarálit frá samgöngunefnd um frumvarp til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Eflaust þekkja þeir sem hafa haft áhuga á þessu máli hinn langa feril sem liggur að baki þessum lögum. Jafnframt því að samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp um íslenska alþjóðlega skipaskrá hefur fjármálaráðherra lagt fram frumvarp um sérstaka skattalega meðferð kaupskipa sem skrá sig á íslenskri alþjóðlegri skipaskrá. Það má segja að tuttugu ára áfanga sé loksins náð þótt sitt sýnist hverjum um lagaumhverfið. En vonandi mun þetta leiða til að kaupskip verði aftur skráð á Íslandi.

Við fengum marga gesti á okkar fund, alla þá sem málið snýr að. Við fórum svo aftur yfir málið fengum gestina aftur að borðinu auk fulltrúa frá Alþýðusambandinu. Málið var reifað þar og að þeim fundi loknum lá eftirfarandi álit fyrir, með leyfi forseta:

„Megintilgangur frumvarps þessa er að stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi, en með kaupskipi er átt við hvert það skip sem flytur farm og/eða farþega gegn endurgjaldi í siglingum milli landa og farmflutningum innan lands og er 100 brúttótonn eða stærra. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði á stofn íslensk alþjóðleg skipaskrá sem verði vistuð hjá Siglingastofnun Íslands. Á skipaskrá verður heimilt að skrá kaupskip í millilandasiglingum og er markmiðið fyrst og fremst að kaupskip íslensku útgerðanna skrái skipin sín hér á landi í stað þess að þau séu skráð erlendis og sigli undir erlendum þjóðfána. Með frumvarpinu er jafnframt stefnt að því að erlendar kaupskipaútgerðir sjái hag sinn í því að skrá skip sín hér á landi.

Samhliða frumvarpi þessu leggur fjármálaráðherra fram frumvarp til laga um skattlagningu kaupskipaútgerðar, 660. mál, sem varðar þær breytingar sem nauðsynlegt er að gera á skattalögum til að tilgangi með stofnun íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár verði náð. Nefndin leggur m.a. til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:

1. Lögð er til leiðrétting á 1. mgr. 4. gr. og síðari málslið 1. mgr. 11. gr. frumvarpsins þar sem fjallað er um skilyrði skráningar kaupskipa á Íslandi á íslenska alþjóðlega skipaskrá.

2. Lagt er til að 4. mgr. 11. gr. frumvarpsins um kjör skipverja í áhöfn kaupskips verði felld niður.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.“

Hv. þm. Hjálmar Árnason, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Guðjón A. Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Jón Bjarnason sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.

Undir álitið rita auk mín hv. þm. Anna Kristín Gunnarsdóttir, Kristján L. Möller, Kjartan Ólafsson, Sigurrós Þorgrímsdóttir og Jón Kristjánsson.