133. löggjafarþing — 96. fundur,  18. mars 2007.

þingfrestun.

[00:31]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 133. löggjafarþings, frá 16. mars 2007 eða síðar ef nauðsyn krefur.

Gjört í Reykjavík, 16. mars 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.

____________

Geir H. Haarde.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 133. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum, starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.