134. löggjafarþing — 1. fundur,  31. maí 2007.

kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[15:43]
Hlusta

Aldursforseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Mér hefur borist ein tilnefning, um 1. þm. Norðvesturkjördæmis, Sturlu Böðvarsson. Eru aðrar tilnefningar?

Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Sturla Böðvarsson er því einn í kjöri.

Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu eins og á undangengnum þingum. Ef ekki eru athugasemdir fer atkvæðagreiðslan fram með þessum hætti. Kerfið er þannig stillt að jafna má við leynilega atkvæðagreiðslu. Töflurnar á veggjum munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Sturlu Böðvarsson ýti á já-hnappinn en þeir sem skila vilja auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt, og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflunni. Hefst nú atkvæðagreiðslan.

 

[Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Sturla Böðvarsson, 1. þm. Norðvest., hlaut 54 atkvæði, 4 þingmenn greiddu ekki atkvæði.]