135. löggjafarþing — 11. fundur,  17. okt. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Kjartan Ólafsson):

Forseti vill láta þess getið að um klukkan 3.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um skuldasöfnun í sjávarútvegi. Málshefjandi er hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson. Hæstv. sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.