135. löggjafarþing — 17. fundur,  2. nóv. 2007.

notkun raflagna og raffanga á Keflavíkurflugvelli.

65. mál
[10:54]
Hlusta

Atli Gíslason (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég lít svo á að með staðfestingu þessara bráðabirgðalaga séum við að brjóta gegn 28. gr. stjórnarskrárinnar. Það gengur gegn skyldum mínum sem alþingismanns að standa að slíku og ég mun segja nei.