135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

varamenn taka þingsæti.

[15:04]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá Ögmundi Jónassyni um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. Varamaður hans, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, tekur sæti hans í dag. Hún hefur tekið sæti á Alþingi áður og er boðin velkomin til starfa á ný.

Jafnframt hefur borist bréf frá Álfheiði Ingadóttur um að hún geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Varamaður hennar, Auður Lilja Erlingsdóttir, tekur sæti hennar í dag. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.