135. löggjafarþing — 18. fundur,  5. nóv. 2007.

fjárfestingar í jarðhita í Suðaustur-Asíu.

[15:17]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Hæstv. forseti. Ég er að sjálfsögðu sammála iðnaðarráðherranum um að Íslendinga bíða mikil og margvísleg tækifæri í sambandi við að veita öðrum þjóðum lið þegar kemur að hagnýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Þetta hefur legið fyrir árum saman og skref verið stigin á undanförnum árum að þessu leyti til eins og hv. fyrrverandi iðnaðarráðherra þekkir náttúrlega mætavel. Hins vegar hvort þær tölur sem hæstv. iðnaðarráðherra nefndi í ræðu sinni í gær eru nákvæmlega raunhæfar hef ég ekki getað sannreynt en það mun tíminn einn væntanlega geta leitt í ljós.