135. löggjafarþing — 19. fundur,  6. nóv. 2007.

heilsársvegur yfir Kjöl.

21. mál
[17:50]
Hlusta

Flm. (Kjartan Ólafsson) (S):

Herra forseti. Ég ætla að kynna hér tillögu til þingsályktunar um heilsársveg yfir Kjöl. Ásamt mér eru þó nokkuð margir meðflutningsmenn að þessari tillögu og ætla ég, með leyfi forseta, að fá að lesa nöfn þeirra hv. þingmanna. Það eru Kristján Þór Júlíusson, Guðni Ágústsson, Einar Már Sigurðarson, Valgerður Sverrisdóttir, Árni Johnsen, Bjarni Harðarson, Björk Guðjónsdóttir, Grétar Mar Jónsson, Birkir J. Jónsson, Ólöf Nordal, Bjarni Benediktsson, Jón Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson, Jón Magnússon og Ásta Möller. Þetta eru þeir 16 hv. þingmenn sem standa að þessari þingsályktunartillögu.

Hún hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna þjóðhagslega hagkvæmni þess að leggja heilsársveg yfir Kjöl. Jafnframt verði gerð forkönnun á umhverfisáhrifum og könnuð samfélagsleg áhrif framkvæmdarinnar, m.a. á atvinnustarfsemi og byggðir landsins. Ríkisstjórnin skili Alþingi skýrslu um málið fyrir 1. apríl 2008.“

Í greinargerð með þingsályktunartillögunni segir á þessa leið:

Ekki er langt síðan farið var að tala af alvöru um þann möguleika að stytta leiðina milli Norður- og Suðurlands með bættum hálendisvegum. Á síðustu árum hefur hins vegar mikið verið um þetta rætt af fullri alvöru með það að markmiði að tengja saman fjölmennustu byggðir landsins. Árið 2003 tók Vegagerðin saman stutta samantekt um styttingu leiða en í henni var m.a. velt upp þeim möguleika að fara um Kjöl og virkja aftur þessa fornu samgönguleið sem Íslendingar hafa nýtt sér um aldir. Sívaxandi þungi ferðamannaumferðar er nú á gamla Kjalvegi með tilheyrandi skemmdum á bifreiðum og rykmengun.

Félagið Norðurvegur ehf. hefur látið vinna úttektir á samfélags- og byggðaáhrifum sem framkvæmdin kynni að valda. Enn fremur hefur félagið látið vinna fyrstu athugun varðandi rekstrarkostnað, stofnkostnað, umferðarspá og hagkvæmni framkvæmdarinnar. Loks hefur verið gerð skoðanakönnun sem sýnir að 52,6% landsmanna eru mjög hlynnt eða frekar hlynnt lagningu heilsársvegar yfir Kjöl. Enn meiri stuðningur er við framkvæmd sem þessa á Akureyri, 66,1%, og 64,7% í Árborg. Þessi gögn munu nýtast við frekari athuganir og undirbúningsvinnu. Vegagerðin hefur enn fremur skoðað veðurfar á hálendinu með vegalagningu í huga.

Allar líkur benda til þess að hægt sé að leggja nýjan Kjalveg frá þjóðvegi 1 við Silfrastaði í Skagafirði yfir að Gullfossi. Slíkur vegur gæti legið upp Goðdalafjall að norðan og svo áfram sem leið liggur milli jökla, lægi síðan austan við Bláfell og mundi enda við umferðarmiðstöðina við Gullfoss. Það mundi þýða 47 km styttingu milli Reykjavíkur og Akureyrar ef farin væri Hellisheiði. Vegalengdin fer úr 388 km niður í 341 km. Stytting milli Selfoss og Akureyrar verður 141 km, fer úr 430 km niður í 289 km. Fyrstu athuganir benda til þess að vetraraðstæður á Kili verði ekki að ráði verri en á fjallvegum á Norður- og Austurlandi.

Ekki þarf að fjölyrða um gífurleg jákvæð byggða- og samfélagsleg áhrif framkvæmdarinnar með tengingu búsvæða. Gera má ráð fyrir því að samkeppni aukist með minni fjarlægðarvernd fyrirtækja bæði fyrir sunnan og norðan, þó sérstaklega fyrir norðan. Flutningskostnaður fyrirtækja mundi einnig lækka.

Framkvæmdin sem slík styttir vegalengdir milli tveggja fjölmennustu svæða landsins frá 50–150 km eftir því við hvaða staði er miðað. Þessi stytting á leiðinni þýðir mun minni olíueyðslu og minni mengun og þar með minna útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Norðurvegur hefur látið reikna út fyrir sig að með vegstyttingu mundi losun gróðurhúsalofttegunda minnka um 1.500 tonn á ári. Með færri eknum kílómetrum vegna styttingar fækkar slysum að sama skapi. Einnig er líklegt að gert yrði ráð fyrir að vegurinn yrði breiðari en þjóðvegur 1 sem er ekki nema 6,5 m að breidd víðast hvar. Breiðari vegur eða sem nemur 8 metrum eykur öryggistilfinningu ökumanna. Öryggi eykst jafnframt með því að umferðin dreifist á fleiri en eina leið.

Nýr Kjalvegur mun hafa gríðarleg áhrif á ferðaþjónustu og dreifa sívaxandi fjölda ferðamanna erlendra og innlendra betur um landið en nú er gert. Framkvæmdin mun auka tekjur af ferðaþjónustu og gera landsmönnum kleift að bregðast betur við sívaxandi ferðamannastraumi. Vegurinn mun tengja saman helstu ferðamannasvæði landsins og ekki verður nema rúmlega 200 km leið milli Gullfoss og Akureyrar svo dæmi sé tekið. Nýr ferðamannaöxull verður þar af leiðandi til milli Gullfoss og Mývatns sem gefa mun miklu meiri möguleika. Kjalvegur mun lengja ferðamannatímabilið, sérstaklega á Norðurlandi en þar er minnst fjölgun gistinátta á landinu og styrking ferðaþjónustu þar því mjög mikilvæg. Nýr Kjalvegur getur einnig haft mikil áhrif á innlenda ferðamenn sem m.a. gætu skipt um veðursvæði með því að fara milli landshluta á rúmum tveim klukkustundum. Þeir einstaklingar sem eiga sumarbústaði í uppsveitum Árnessýslu gætu á rúmum tveim klukkustundum farið norður yfir heiðar og komist þar þá í betra veður ef svo bæri undir, eða öfugt.

Framkvæmd sem þessi, ef hagkvæm reynist, fellur vel að byggðastefnu stjórnvalda og öllum meginmarkmiðum í samgönguáætlun um að stytta leiðir og tengja byggðir betur saman. Þess má geta að markmið Evrópusambandsins í vegagerð er einfalt, það er að tengja stærri byggðarlög, stytta leiðir og draga þar með úr samgöngukostnaði. Hið sama má segja um frændur okkar Norðmenn sem hafa eitt meginmarkmið í vegasamgöngum, stytta leiðir og tengja þéttbýlustu svæðin á vesturströndinni við Óslóarsvæðið. Norðmenn fara í gegnum sitt hálendi á fimm stöðum með hálendisvegi sem eru allt að 600 km langir og ná upp í allt að 1.100 m hæð.

Herra forseti. Það má færa frekari rök að því að þessi vegalagning yfir Kjöl sé arðbær og ég hef rakið nokkra af þeim þáttum. Við það má bæta að ég tel að þessi samgöngubót muni styrkja starfsemi eins og Háskólans á Akureyri, tengja betur saman Suður- og Norðurland og að sama skapi styrkja og styðja frekar að háskólanum á Hólum svo og Kennaraháskóla Íslands sem er með íþróttaskor á Laugarvatni. Þessi byggðarlög munu ná betur saman og menning mun aukast verulega á milli þessara svæða sem mun styrkja þau hvert um sig.

Ég er sannfærður um að samkvæmt byggðaáætlun 2006–2009 sem var samþykkt á Alþingi hafi megininntak hennar verið að auka menntun á landsbyggðinni og bæta og auka samgöngur. Það er nákvæmlega það sem heilsársvegur yfir Kjöl mundi gera og ég tel að þetta væri ein af betri mótvægisaðgerðum sem gerðar væru miðað við núverandi ástand og þá þróun sem er að verða varðandi niðurskurð þorskveiðiheimilda. Svona mundum við styrkja atvinnulífið á víðum grunni. Auk þess tel ég að vegur yfir Kjöl yrði grænn vegur. Þetta er vegur sem mundi breyta því ástandi sem nú er þar sem hlykkjóttur, holóttur og pollóttur vegur yfir Kjöl gerir ekki annað en að skemma bifreiðar og valda mikilli mengun og hávaða í umhverfinu. Þannig lít ég á þennan veg sem grænan veg, hann mun falla að landslaginu, það verður grætt upp með veginum og þess vegna fullyrði ég að þetta sé grænn og vænn vegur fyrir samfélagið okkar.

Hæstv. forseti. Ég legg til að þessari tillögu verði vísað til samgöngunefndar.