135. löggjafarþing — 27. fundur,  19. nóv. 2007.

tollalög.

229. mál
[15:47]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég get ekki sagt að ég hafi leitt hugann að þessu sérstaklega en mér finnst vegna ábendingar hv. þingmanns sjálfsagt að reyna að haga því þannig að hægt sé að fjalla um það í nefndinni og upplýsingar geti þá legið fyrir um þetta frá ráðuneytinu.