135. löggjafarþing — 28. fundur,  20. nóv. 2007.

fjáraukalög 2007.

103. mál
[19:50]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Gunnar Svavarsson) (Sf):

Herra forseti. Ég vil í lok þessarar umræðu, 2. umr. um frumvarp til fjáraukalaga, renna aðeins yfir það sem rætt hefur verið um. Við höfum vissulega farið vítt og breitt yfir sviðið og fjallað um lög um fjárreiður ríkisins, við höfum líka fjallað um framkvæmd fjárlaga og skoðað verklag við gerð og framkvæmd þeirra.

Ég vil einnig benda á að meiri hluti fjárlaganefndar, auk mín hv. þingmenn Kristján Þór Júlíusson, Ásta Möller, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson og Björk Guðjónsdóttir, ásamt hv. þm. Bjarna Harðarsyni, sem skrifar undir meirihlutaálitið með fyrirvara. Hv. þingmenn Illugi Gunnarsson og Guðbjartur Hannesson hafa fylgt eftir umræddu áliti frá meiri hlutanum. Álitið inniheldur tvær breytingartillögur við 6. gr. heimildir, breytingartillögur við tekjuhlið A-hluta, sem nemur 8,2 milljörðum, og gerð er grein fyrir í þskj. 266 sundurliðað, og breytingartillögur við gjaldahliðina sem eru 54 og nema 4,9 milljörðum og eru tilgreindar í þskj. 265.

Hv. þingmenn Jón Bjarnason og Guðjón A. Kristjánsson leggja fram minnihlutaálit á þskj. 273 og hafa gert grein fyrir því hér í dag. Vil ég þakka þeim sérstaklega fyrir það sem þeir leggja fram varðandi umræðu um fjáraukalög og framkvæmd fjárlaga.

Að lokum vil ég ítreka það sem fram kemur í nefndarálitinu. Það er álit meiri hluta fjárlaganefndar, og ég get tekið undir að það sé líka álit minni hlutans, með leyfi forseta, að:

„… á milli 2. og 3. umræðu þurfi að skoða sérstaklega framhaldsskóla almennt, rekstrarkostnað sýslumannsembætta, heilbrigðisstofnanir og hjúkrunarheimili og gera tillögu um skiptingu fjárheimildar á einstakar stofnanir. Enn fremur mun nefndin skoða á milli umræðna málefni er varða eignir á fyrrum varnarsvæði við Keflavíkurflugvöll.“

Að lokum segir, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum þeim sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum“ — sem ég vék hér að. Ég ítreka að hv. þm. Bjarni Harðarson skrifar undir álit meiri hluta fjárlaganefndar með fyrirvara.