135. löggjafarþing — 31. fundur,  27. nóv. 2007.

aðgerðir til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum.

34. mál
[16:18]
Hlusta

Arnbjörg Sveinsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það var ágætt að fá þessa upprifjun. Eins og kom fram hjá hv. þm. Siv Friðleifsdóttur vakti þetta töluvert mikla athygli og ég held verðskuldaða. Á bak við þetta voru miklar pælingar og þegar búið var að fá fyrsta formanninn til að segja já fylgdu hinir á eftir. Þetta þurftum við að gera til að koma herferðinni af stað. Slagorðin hafa sitt gildi en við þurfum alltaf að hafa hina djúpu alvöru í huga þegar við ræðum þessi mál.