135. löggjafarþing — 38. fundur,  6. des. 2007.

aðgerðir til að bæta kjör aldraðra og öryrkja.

[10:33]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Ég vil gera þinginu grein fyrir þeirri yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf í gær um aðgerðir til að bæta kjör aldraðra og öryrkja. Yfirlýsingin er svohljóðandi, með leyfi forseta:

1. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að styrkja stöðu aldraðra og öryrkja með því að draga úr tekjutengingum og skerðingum bóta í almannatryggingakerfinu. Fyrsta skref í þessa átt var stigið sl. sumar þegar tekjutenging launatekna 70 ára og eldri við lífeyri almannatrygginga var að fullu afnumin. Áætlað er að árlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa nemi 600–700 millj. kr.

2. Ríkisstjórnin hefur þegar hafið undirbúning frekari aðgerða sem koma til framkvæmda í áföngum á árunum 2008–2010.

3. Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að eftirfarandi aðgerðir verði lögfestar að hennar frumkvæði á vorþingi:

Skerðing tryggingabóta vegna tekna maka verður afnumin frá og með 1. apríl 2008. Áætlaður kostnaður er 1.350 millj. kr. árið 2008 og 1.800 millj. kr. á heilu ári.

Gripið verður til sérstakra aðgerða til að draga úr of- og vangreiðslum tryggingabóta frá og með 1. apríl 2008. Áætlaður kostnaður er 345 millj. kr. árið 2008 og 460 millj. kr. á heilu ári.

Vasapeningar vistmanna á stofnunum verða hækkaðir úr 28.500 í 36.500 kr. á mánuði, eða um 30%, frá og með 1. apríl 2008. Áætlaður kostnaður er 35 millj. kr. árið 2008 og 50 millj. kr. á heilu ári.

Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega á aldrinum 67–70 ára verður hækkað í allt að 100 þúsund kr. á mánuði frá 1. júlí 2008. Jafnframt mun ríkissjóður tryggja að ellilífeyrisþegar fái að lágmarki 25 þúsund kr. á mánuði frá lífeyrissjóði frá 1. júlí 2008. Aðgerðir sem skila öryrkjum sambærilegum ávinningi verða undirbúnar í tengslum við starf framkvæmdanefndar um örorkumat og starfsendurhæfingu. Áætlaður kostnaður er 1.000 millj. kr. árið 2008 og 2.000 millj. kr. á heilu ári.

Skerðing lífeyrisgreiðslna vegna innlausnar séreignarsparnaðar verður afnumin frá 1. janúar 2009. Áætlaður kostnaður er um 30 millj. kr.

4. Kostnaður vegna þessara aðgerða er talinn nema 2.700 millj. kr. árið 2008 og 4.300 millj. kr. á heilu ári. Samanlagt nemur því heildarkostnaður vegna ákvarðana núverandi ríkisstjórnar til að bæta kjör aldraðra og öryrkja um 5.000 millj. kr. á ári. Í samræmi við þessa niðurstöðu mun ríkisstjórnin beita sér fyrir nauðsynlegri hækkun á framlögum til þessara málaflokka við 3. umræðu um fjárlög fyrir árið 2008.

5. Unnið er að heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins með það fyrir augum að frekari aðgerðir til að bæta kjör aldraðra og öryrkja komi til framkvæmda á árunum 2009 og 2010. (Forseti hringir.)

Þessi yfirlýsing vildi ég að væri þingheimi heyrumkunn og hef því lesið hana hér upp. (Forseti hringir.) Ég vil geta þess að hæstvirtir utanríkis- og félagsmálaráðherrar eru uppteknar við skyldustörf annars staðar og geta því ekki tekið þátt í þessari umræðu.