135. löggjafarþing — 38. fundur,  6. des. 2007.

skýrsla forsætisráðherra um starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.

[11:03]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er á milli þingflokkanna um ræðutíma í umræðunni. Umferðir verða tvær. Í fyrri umferð hefur ráðherra 20 mínútur til framsögu en talsmenn þingflokka 15 mínútur. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 5 mínútur og að auki ráðherra 5 mínútur í lok umræðunnar.