135. löggjafarþing — 38. fundur,  6. des. 2007.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2007, um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.

269. mál
[15:52]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2007, um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Nínu Björk Jónsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Sigríði Auði Arnardóttur, Kristínu Lindu Árnadóttur og Gunnar Stein Jónsson frá umhverfisráðuneyti og Umhverfisstofnun.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2007 frá 26. október 2007, um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 13. október 2003 um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan bandalagsins og um breytingu á tilskipun ráðsins 96/61/EB; tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/101/EB frá 27. október 2004 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan bandalagsins að því er varðar verkefniskerfi Kyoto-bókunarinnar; reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2216/2004 frá 21. desember 2004 um staðlað og varið skráningarkerfi samkvæmt tilskipun 2003/87/EB og ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2004/156/EB frá 29. janúar 2004 um að setja viðmiðunarreglur fyrir vöktun á losun gróðurhúsalofttegunda og skýrslugjöf um losunina samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB og ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2006/780/EB frá 13. nóvember 2006 um að komast hjá því að tvíreikna skerðingu á losun gróðurhúsalofttegunda í kerfi bandalagsins, með viðskipti með heimildir til losunar að því er varðar verkefnistengdar aðgerðir samkvæmt Kyoto-bókuninni, í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB.

Innleiðing tilskipana Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB frá 13. október 2003 og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/101/EB frá 27. október 2004 kalla á lagabreytingar.

Nefndin leggur áherslu á að mikilvægt sé að mál af þessum toga komi framvegis fyrr fyrir Alþingi en raunin varð á með þetta mál. Þótt hið nýja losunarkerfi milli Evrópusambandsríkjanna muni nú hafa óveruleg áhrif hér á landi er jafnframt ljóst að stefnt er að því innan Evrópusambandsins að fella flugsamgöngur og jafnvel skipasamgöngur undir kerfið. Utanríkismálanefnd telur því mikilvægt að hún og viðkomandi fagnefndir, samgöngunefnd og umhverfisnefnd, verði upplýstar reglulega um stöðu mála að því leyti og um framgang þeirra samninga sem fulltrúar Íslands standa að á Evrópuvettvangi um breytingar á losunarkerfinu að þessu leyti.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt. Bjarni Benediktsson, Lúðvík Bergvinsson og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir álitið skrifa Árni Páll Árnason, varaformaður og framsögumaður, Steingrímur J. Sigfússon, með fyrirvara, Ragnheiður Elín Árnadóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Magnús Stefánsson og Guðfinna S. Bjarnadóttir.