135. löggjafarþing — 41. fundur,  11. des. 2007.

aukatekjur ríkissjóðs.

234. mál
[20:28]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta eru sjónarmið sem eru góðra gjalda verð og hafa komið fram. Ég hef lýst yfir afstöðu minni til málsins en verð þó að segja eitt til viðbótar, að íslensk stjórnvöld eru ótrúlega treg að láta reyna á að fara aðrar leiðir en ákveðnar eru í Brussel.