135. löggjafarþing — 42. fundur,  13. des. 2007.

fjárlög 2008.

1. mál
[01:06]
Hlusta

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Örstutt andsvar við þeirri áskorun sem í tvígang kom fram hjá hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni. Ég leyfi mér í þessu andsvari mínu að vísa til umræðu sem ég hef átt í dag við hv. þingmenn og flokksbræður Árna Þórs, þá Jón Bjarnason og Steingrím J. Sigfússon, síðast núna í kvöld og vísa til þeirra svara sem ég gaf við þeim spurningum sem voru í sama anda og komu fram í þeirri fyrirspurn sem Árni Þór vísaði til hér áðan.