135. löggjafarþing — 46. fundur,  14. des. 2007.

þingfrestun.

[18:04]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 135. löggjafarþings, frá 14. desember 2007 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 15. janúar 2008.

Gjört í Reykjavík, 14. desember 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.

_____________

Geir H. Haarde.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis frá því í gær lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 135. löggjafarþings, er frestað. Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.